Sumarið 2006 fann Dr. Bjarni F. Einarsson ummerki í landslaginu sunnan við kirkjugarðinn í Stöð sem bentu til þess að fornleifar kynnu að vera þar undir. Ekkert varð af rannsóknum fyrr en hópur heimamanna komst á snoðir um málið og fékk Bjarna til þess að grafa í túnið og hefja rannsóknir. Það var haustið 2015.
Á hverju sumri síðan, hefur Bjarni mætt með vaska sveit og grafið í rústunum sem hann fann þarna og þær eru eldri nokkurn hafði grunað.

