Á Stöðvarfirði er margt um að vera. Hér að neðan eru nokkur dæmi um það.

Steinasafn Petru
Stærsta steinasafn í heimi, lystigarður og kaffihús. Það er Steinasafn Petru.

Brauðdagar Deighús
Ef brauðið er frá Brauðdögum Deighúsi, er það gott. Heimsending tvisvar í viku um allt Austurland.

Salthússmarkaðurinn
Á þessum markaði er selt handverk heimamanna og brottfluttra. Frábær markaður sem vert er að skoða.

Kaffi Kvörn
Sum segja að hér fáist besta kaffi á Íslandi. Hér verður ekki þrætt um það. Á Kaffi Kvörn er hægt að fá kaffi í áskrift og það er sent hvert á land sem er. Þar er líka gott að setjast niður og spjalla.

Gallerí Snærós
Í galleríinu er að finna allskyns list; myndlist, leirlist og vefnað svo fátt eitt sé nefnt.

Studio Silo
Studio Silo er hljóðver þar sem hægt er að taka upp bæði hliðrænt og stafrænt.