Grunnskólinn á Stöðvarfirði

Vordagar 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Föstudagur, 21 maí 2010 09:57

Dagana 25. maí til 28. maí höldum við vordaga í Grunnskólanum á Stöðvarfirði. Farið verður í leiki, ferðalög og fjallgöngur; við gróðursetjum og að sjálfsögðu verður snætt. En dagskráin er annars á þessa lund:

Þriðjudagur 25. maí:  Heimsókn í Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum og Tækniminjasafn Austurlands á Seyðisfirði. Lagt verður af stað frá skólanum með langferðabifreið kl. 09:00 og áætluð heimkoma er kl. 14:15.

Miðvikudagur 26. maí:   Úti í Nýgræðingi gróðursetjum við plöntur, dreifum áburði og komum fyrir skiltum. Að því loknu verður farið í leiki og rifjaðir upp útileikir barna frá þeim tíma þegar orðið „tölvuleikur“ var ekki til.

Fimmtudagur 27. maí:  Gengið á Hrafnahnjúk.

Föstudagur 28. maí:   Þennan dag fer fram árlegt Balahlaup, reiðhjólakeppni og honum lýkur með grilli.
 

Á myndinni hér að neðan, er Friðrik Júlíus á fleygiferð í hjólaþrautabrautinni á vordögum í fyrra.


 
Próftafla Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Föstudagur, 14 maí 2010 08:49
Próftafla Miðstigs og Elsta stigs:

 

Þriðjudagur 18. maí: Miðvikudagur 19. maí: Fimmtudagur 20. maí: Föstudagur 21. maí:
08:00 Íslenska - Elsta stig Náttúrufræði - bæði Enska - bæði Danska - Elsta stig
        Íslenska - Miðstig
10:30 Grunnteikning - heimilisfræði Náttúrufræði - bæði Stærðfræði - bæði Saga - Elsta stig
        Landafræði - Miðstig

 
Flatbökur með áleggi og osti Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 06 maí 2010 15:18
Síðastu heimilsfræðitímar vetrarins voru í dag, en þá bökuðu nemendur á Yngsta stigi og Miðstigi svokallaðar pizzur, betur þekktar hér á landi sem flatbökur með áleggi og osti.  Þar sem nú stendur yfir foreldravika í skólanum, voru nokkrir foreldrar svo heppnir að njóta góðs af þessu og kennarar fengu líka sinn skammt.

 
Skíðaferð í Oddsskarð Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Föstudagur, 30 apríl 2010 11:54

 
Keppnisdagar 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Miðvikudagur, 21 apríl 2010 14:20
Árlegir keppnisdagar voru í Grunnskólanum á Stöðvarfirði dagana 20. og 21. apríl.  Þar var keppt í tveimur aldursflokkum, yngri nemendur og eldri nemendur og voru þrjú lið í hvorum flokki.  Í yngri flokki kepptu Grænu hryðjuverkamennirnir, Bleiki pardusinn og Bláa gosið en í þeim eldri voru liðin Svampur Sveinsson (gulir), Rednecks og Malaga F.C. (fjólubláir).

Keppt var í íþróttum, ratleik, ljósmyndun, heimilisfræði, myndlist, smíði og háttvísi.

Grænu hryðjuverkamennirnir og Bleiki pardusinn skiptu með sér háttvísiverðlaununum í flokki yngri nemenda en Rednecks voru háttvísastir meðal hinna eldri.

Í hinum greinunum deildu Bleiki pardusinn og Bláa gosið efsta sætinu hjá þeim yngri en Rednecks urðu hlutskarpastir í eldri flokknum.

Að keppni lokinni fóru allir nemendur í pítsuveislu á Brekkunni.

En látum myndirnar tala sínu máli og byrjum á myndum af liðunum:

 

 
Í myndlist voru máluð eldfjöll og fagrar konur:

 

Næst eru allar myndirnar úr ljósmyndakeppninni en hvert lið valdi tíu myndir sem sitt framlag.  Þema ljósmyndakeppninnar var „Hreyfing:“
 
 


 
Og svo er það smíðin:
 

 
Að lokum eru svo afurðir úr smíði, heimilisfræði og myndmennt.  Takið sérstaklega eftir vel straujuðum skyrtunum:
 
 
Keppnisdagar 2010 - myndband Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 06 maí 2010 20:58
 
Sundkennsla Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Þriðjudagur, 04 maí 2010 16:48

Sundkennslan hefst n.k. mánudag. Í stað þess að nemendur fari tvisvar í laugina á dag í eina viku, ætlum við að breyta hlutunum. Að nemendur verði í sundkennslu í 2 vikur og verði eina kennslustund á dag.

Yngsta stig kl. 11.10 á mánud. og miðvikud. Aðra daga kl. 13.00.

Miðstig alla daga kl. 13.40.

Elsta stig alla daga kl. 14.20.

Ef þessir tímar stangast á við tónlistarskólann, eru menn beðnir að hafa samband við Valdimar og Garðar. Þeir ætla að hliðra til ef þarf.

 
Sumarkveðja Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 29 apríl 2010 10:32

Nemendur á Elsta stigi sendu öllum Stöðfirðingum sumarkveðju fyrir sumardaginn fyrsta. Þau teiknuðu glaðleg kort sem þau máluðu og lituðu. Síðan völdu þau, úr bókum og af netinu, uppbyggileg spakmæli og tilvitnanir fyrir kortin.

Verkefni þetta var unnið í lífsleikni og hugmyndin sú að senda fólki jákvæðar og uppörvandi hugsanir til að vega aðeins upp á móti fremur neikvæðum umræðum og fréttaflutningi, vegna kreppu og erfiðs þjóðfélagsástands.

 
Myndræn endurvinnsla Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 15 apríl 2010 11:56

Síðastliðinn þriðjudag fengum við góða gesti hingað í skólann. Það voru þau Hanna og Helgi sem komu með fræðsluverkefnð „Hugmyndavinna og endurvinnsla efnis í myndlist og sköpun.“ Skaftfell á Seyðisfirði stendur fyrir þessu verkefni.

Í grunninn gekk námskeiðið út á að kenna nemendum að horfa á og hugsa um hluti í öðru samhengi en þeir voru upprunalega gerðir fyrir. Þannig læra krakkarnir um leið að endurnýta hluti og virkja hugmyndaflugið. Voru það nemendur af Elsta stigi sem nutu leiðsagnar þeirra. Byrjað var á stuttri kynningu þar sem rætt var um ýmsa hönnun og myndlist og sýndar myndir af verkum, þar sem gamlir hlutir hafa verið settir í nýtt samhengi. Því næst var farið í hugmyndavinnu og nemendur útfærðu síðan hugmyndir sínar en í þessu tilfelli var unnið með tómar mjólkurfernur.

Nemendur voru áhugasamir og var mikill handagangur í öskjunni (fernununum). Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.skaftfell.is og hér mjá sjá myndir frá námskeiðinu.
 

 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 2 af 10