Grunnskólinn á Stöðvarfirði

Göngum í skólann Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Þriðjudagur, 29 september 2009 15:48

 
Gönguferð hjá Miðstiginu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Miðvikudagur, 23 september 2009 13:44
Í dag fóru nemendur á Miðstigi ásamt tveimur kennurum í gönguferð með Miðstigsnemendum á Fáskrúðsfirði og þeirra fylgdarmönnum. 
Gengið var yfir Hvammsheiði og lagt af stað frá Hvammi rúmlega hálf níu.  Gangan sóttist vel, veðrið var yndislegt og um hádegisbil sameinaðist hópurinn í hádegisverði í Grunnskólanum á Stöðvarfirði.
 
 
Ljós, speglar og linsur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Þriðjudagur, 15 september 2009 14:30
Krakkarnir á Miðstigi fóru út í góða veðrið í dag með stækkunargler, spegla og ímyndunaraflið að vopni.  Þau léku sér með sólarljósið en skemmtilegast var þó þegar þau uppgötvuðu að hægt er að kveikja eld með stækkunargleri og sólargeislum.  Já, og að sjálfsögðu eldsneyti.

Miðstigið er að læra um ljós, spegla og linsur í bókinni Auðvitað I og því þótti tilvalið að nýta uppsprettu alls ljóss á jörðinni þegar það loksins sást.
 

 


 
Ef smellt er á myndina hér fyrir neðan, má sjá fleiri myndir úr þessari kennslustund.  Að sjálfsögðu skrifuðu nemendur svo skýrslu um ferðina og veltu fyrir sér hvers vegna það er hægt að endurvarpa ljósi eða safna því í lítinn, heitan punkt.

 
Vélfræði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 03 september 2009 15:14
Í vetur er kennd vélfræði við Grunnskólann á Stöðvarfirði.  Þetta er í annað sinn sem það er  gert en veturinn 2005 - 2006 var gerð tilraun með þessa námsgrein.  Að þessu sinni er byggt á reynslunni sem þá fékkst en námsefnið lagað og bætt.  T.d. er byrjað á grunnefni eins og efnisfræði málma og farið yfir hvar mismunandi málmar eru notaðir og hvar þeir koma við sögu í okkar daglega lífi.
 

Nemendum verður kennt að beita handverkfærum og þeir látnir taka í sundur og setja saman lítinn sprengihreyfil, t.d. úr sláttuvél eða orfi.
 
Guðmundur með úrrekið, dórinn eða stöppuna.

Einnig verður farið yfir sögu og þróun véla frá fornöld til okkar daga.

Snæþór skoðar muninn á HSS bor og kóbaltbor.

Vélfræðin er valgrein og einhverra hluta vegna, voru það bara strákar sem skráðu sig til þátttöku.
 
Fjarðaforeldrar ! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Miðvikudagur, 26 ágúst 2009 09:05
Stofnfundur Fjarðaforeldra var haldinn 28. maí síðastliðinn. Fjarðaforeldrar er svæðisráð foreldrafélaga grunnskólanna í Fjarðabyggð.  Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Fjarðaforeldra sem finnst á link hér til hliðar. 
 
Gufuvél Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 17 september 2009 16:18

 
Norræna skólahlaupið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Miðvikudagur, 09 september 2009 12:13
Í morgun hlupu nemendur og starfsfólk Grunnskólans á Stöðvarfirði Norræna skólahlaupið.  Þátttakendur gátu valið milli þriggja vegalengda; 2,5 km, 5 km og 10 km.  Allir sem í skólanum voru tóku þátt og myndir af öllum hópunum má sjá með því að smella hér en hópurinn á myndinni hér að neðan fór 10 kílómetra.
 
 
 
Rifið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 27 ágúst 2009 15:19
Nemendur í upplýsingatækni á Elsta stigi, fengu í dag það verkefni að rífa sundur gamla tölvu og kynnast þannig innviðum svoleiðis verkfæra.


Í næsta tíma eiga þau að setja hana rétt saman aftur og koma henni í gang.

Fleiri myndir hérna.
 
 
 
Lokadagurinn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 25 júní 2009 10:46
Lokadagur skólastarfsins þann 29. maí hófst með útivist.  Eldri nemendur ætluðu að ganga upp Mosfellið sem er gegnt þorpinu, en urðu frá að hverfa vegna þoku.  Fóru þeir í staðinn á hálsinn fyrir neðan Mosfellið.  Yngri nemendur fóru upp fyrir þorpið og gengu að Klifbotnum og Háahnaus.  Að gönguferðum loknum hittust allir nemendur í Steinasafni Petru.  Þar skoðum þeir steina (að sjálfsögðu) og nutu veitinga.  Síðan var fyrirhugað að grilla fyrir allan mannskapinn, en vegna veðurs var borðað í Brekkunni.
Klukkan tvö var svo einkunna- og verðlaunaafhending.



Hér má sjá myndir af eldri nemendum, yngri nemendum og einkunnaafhendingum.
 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 10