Grunnskólinn á Stöðvarfirði

Námskrá Miðstigs Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Þriðjudagur, 13 október 2009 13:58

Íslenska
Björgvin Valur Guðmundsson
 

Á miðstigi ber að leggja áherslu á heildstætt nám í íslensku. Viðfangsefnin skulu vera fjölbreytileg og ná til allra námsþátta íslensku, í samræmi við þroska og áhuga nemenda. Leggja skal sérstaka áherslu á fjölbreytta lestrarþjálfun og mikils er um vert að vekja áhuga nemenda á móðurmálinu og bókmenntum

Markmið

Sjá aðalnámskrá fyrir íslensku á síðu Menntamálaráðuneytisins.

Lestur

Nemandi skal geta lesið sér til gagns og verði orðinn vel læs á ýmiskonar nytjatexta, hafa öðlast góðan lesskilning og búa að fjölbreyttum orðaforða. Nemandinn á að geta gert mun á aðalatriðum og aukatriðum í texta og geta safnað upplýsingum úr heimildum og unnið úr tölulegum og myndrænum upplýsingum. Einngi geti nemandi lesið bækur sér til ánægju og afþreyingar og lesið skýrt og á blæbrigðaríkan hátt á viðeigandi hraða.

Talað mál og framsögn

Nemandi á að geta lesið laust og bundið mál skýrt og áheyrilega og flutt ljóð og stutt ávörp um undirbúið efni og geti gert grein fyrir niðurstöðum í verkefnum. Mikilvægt er að nemandi taki þátt í samræðum og fari eftir þeim reglum sem þar gilda og að hann geti rökstutt skoðanir sínar.

Ritun

Nemandi á að geta sent frá sér ritað mál af ýmsu tagi, m.a. með því að skrifaendursagnir og sendibréf hafa öðlast öryggi í að tjá hugmyndir sínar og skoðanir í rituðu máli og hafi fengist við skapandi skrif, m.a. samið sögur, ljóð og leikrit.

Nemandi skal hafa tileinkað sér persónulega rithönd og náð góðum skriftarhraða,öðlast hæfni í stafsetningu og notað réttritunarorðabækur markvisst

Bókmenntir

Nemandi skal hafa kynnst bókmenntatextum af ýmsu tagi, íslenskum og erlendum, bæði með eigin lestri og upplestri. Hann ska hafa lært nokkur valin ljóð, unnið með þau og flutt. Notkun bókasafna er mikilvæg og skal lögð áherlsa á hana.

Málfræði

Nemandi á að geta nýtt sér málfræðikunnáttu sína í tengslum við mælt mál, ritað og hafa tileinkað sér öryggi við beitingu tungumálsins. Hann skal hafa kynnst uppbyggingu tungumálsins og þekki einkenni helstu orðflokka. Hann á að geta gert sér nokkra grein fyrir setningaskipan. Á þessu aldursstigi skal nemandi hafa ræktað með sér áhuga á móðurmálinu og tamið sér að vanda mál sitt

Námsmat

Veturinn skiptist í tvær annir, haustönn og vorönn. Á hvorri önn eru lokapróf auk skyndiprófa. Á prófskírteini nemanda eru tvær einkunnir: prófseinkunn og starfseinkunn. Þessar tvær einkunnir hafa jafnt vægi. Lokapróf haustannar eru í desember og lokapróf vorannar í maí. Samræmd próf í 7. bekk verða þó fyrr eða 14. og 15. október.

Starfseinkunn

Árangur á skyndiprófum, könnunum og æfingum, skil á heimavinnu og verkefnum ásamt mati kennara á vinnuframlagi og hegðun nemandans.

Prófseinkunn

Frammistaða á lokaprófi annarinnar.

 


Stærðfræði
Björgvin Valur Guðmundsson

Um tíu ára aldur fara börn smám saman að ná tökum á óhlutbundinni rökhugsun. Sum ná fljótlega góðu valdi á slíkum hugsanagangi en önnur byggja allan sinn skilning á hlutbundinni tengingu. Árangur í stærðfræðinámi er mjög undir því kominn að nemanda gefist tími og næði til að vinna að námi sínu með íhygli, bæði með því að lesa námsbækur og önnur námsgögn, nota áþreifanlega hluti, skrifa minnispunkta og teikni myndir til að fá skýrari hugmyndir um þau hugtök sem verið er að fást við.

Markmið

Sjá aðalnámskrá fyrir stærðfræði á síðu Menntamálaráðuneytisins.

Námsmat

Veturinn skiptist í tvær annir, haustönn og vorönn. Á hvorri önn eru lokapróf auk skyndiprófa. Á prófskírteini nemanda eru tvær einkunnir: prófseinkunn og starfseinkunn. Þessar tvær einkunnir hafa jafnt vægi. Lokapróf haustannar eru í desember og lokapróf vorannar í maí. Samræmd próf í 7. bekk verða þó fyrr eða 14. og 15. október.

Starfseinkunn

Árangur á skyndiprófum, könnunum og æfingum, skil á heimavinnu og verkefnum ásamt mati kennara á vinnuframlagi og hegðun nemandans.

Prófseinkunn

Frammistaða á lokaprófi annarinnar.

 


Náttúrufræði
Björgvin Valur Guðmundsson

Á þessu aldursstigi er fylgt eftir áherslum af yngsta stigi auk þess sem gera þarf völdum atriðum góð skil til að leggja frekari grunn að sérhæfðara námi síðar. Áfram skal byggt á dæmum úr náttúru landsins, nánasta umhverfi nemenda og þeim raunveruleika sem við þeim blasir. Námið skal tengt merkingarbærum og áhugaverðum verkefnum sem fela í sér athuganir, úrvinnslu og túlkun niðurstaðna og leitast skal við að opna augu nemenda gagnvart náttúru og umhverfi.

Markmið

Sjá aðalnámskrá fyrir náttúrufræði á síðu Menntamálaráðuneytisins.

Námsmat

Veturinn skiptist í tvær annir, haustönn og vorönn. Á hvorri önn eru lokapróf auk skyndiprófa. Á prófskírteini nemanda eru tvær einkunnir: prófseinkunn og starfseinkunn. Þessar tvær einkunnir hafa jafnt vægi. Lokapróf haustannar eru í desember og lokapróf vorannar í maí. Samræmd próf í 7. bekk verða þó fyrr eða 14. og 15. október.

Starfseinkunn

Árangur á skyndiprófum, könnunum og æfingum, skil á heimavinnu og verkefnum ásamt mati kennara á vinnuframlagi og hegðun nemandans.

Prófseinkunn

Frammistaða á lokaprófi annarinnar.

 


Enska
Björgvin Valur Guðmundsson

Á upplýsingaöld er kunnátta í ensku orðin nauðsynleg í daglegu lífi. Við þurfum að geta átt samskipti við fólk erlendis, nýtt okkur upplýsingar á tölvutæku formi og notað tungumálið til gagns og ánægju. Þess vegna leggjum við áherslu á talað mál alveg frá 5. bekk.

Við útskrift af miðstigi eru þessi markmið sett

Talað mál

Nemandi geti tekið þátt í samskiptum, s.s. kynnt sig, heilsað, kvatt og þakkað fyrir sig og sagt frá viðfangsefnum sem unnið hefur verið með.

Hlustun

Nemandi skal hafa kynnst söngvum og skilji frásagnir um kunnuglegt efni. Nemandi geti hlustað eftir upplýsingum og leiðbeiningum sem snerta samskipti og umgengni í kennslustofunni.

Lestur

Nemandi geti lesið viðeigandi texta sér til skilnings og leitað eftir upplýsingum í texta. Nemandi geti nemandi unnið með orðaforða.

Ritun

Nemandi geti skrifað eftir fyrirmælum stutta texta, s.s. bréf, texta við myndirog texta á veggspjöld.

Sjá aðalnámskrá fyrir erlend tungumál á síðu Menntamálaráðuneytisins.

Námsmat

Veturinn skiptist í tvær annir, haustönn og vorönn. Á hvorri önn eru lokapróf auk skyndiprófa. Á prófskírteini nemanda eru tvær einkunnir: prófseinkunn og starfseinkunn. Þessar tvær einkunnir hafa jafnt vægi. Lokapróf haustannar eru í desember og lokapróf vorannar í maí. Samræmd próf í 7. bekk verða þó fyrr eða 14. og 15. október.

Starfseinkunn

Árangur á skyndiprófum, könnunum og æfingum, skil á heimavinnu og verkefnum ásamt mati kennara á vinnuframlagi og hegðun nemandans.

Prófseinkunn

Frammistaða á lokaprófi annarinnar.

 


Landafræði

Jónas E. Ólafsson

Markmið

Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir samfélagsgreinar

Áfangamarkmið í landafræði við lok 7. bekkjar

Nemandi á að:
  • kunna að lesa og túlka kort, loftmyndir og önnur landfræðileg gögn, hvort sem er í bókum eða tölvum
  • þekkja hnattlíkan, bauganet og tímabelti jarðar
  • geta notað kortabækur, kort og hnattlíkön til upplýsingaöflunar og hafa skilning á helstu litum, táknum og hugtökum þar að lútandi
  • kunna skil á loftmyndum og hefðbundnum staðfræðikortum
  • átta sig á hvernig kort eru búin til á grunni upplýsinga af loftmyndum
  • þjálfast í lestri og framsetningu á einföldum töflum og geta sett upplýsingar, sem hann hefur aflað sjálfur, fram á myndrænan hátt
  • þekkja helstu tákn sem notuð eru í veðurlýsingu
  • þekkja höfuðáttirnar fjórar, tvo undirflokka þeirra og hvernig þær tengjast skiptingu hrings
  • hafa þjálfast í að túlka stöðluð tákn á hefðbundnu staðfræðikorti, s.s. hæðarlínur og landslagsskyggingu
  • kynnast einföldum þemakortum og hvernig setja má upplýsingar fram um fjölda eða stærð, t.d. með einu tákni af mismunandi stærð eða að lita afmörkuð svæði með einum lit en misdökkum

 

Námsefni

Kennslubókin- Ísland veröld til að njóta, Kortabók handa grunnskólum, Veraldarvefurinn , ýmsir vefir s.s. Íslandsvefurinn, Hagstofa Íslands, vefir sveitafélaga, vefir um náttúruvernd, bækur og annað margmiðlunarefni,gagnvirk verkefni

Námsmat

Heimanám, samvinna, vinnusemi í tímum, framkoma, próf.
 


Lífsleikni
Solveig Friðriksdóttir

Unnið verður með námsefnið Ertu? og Valur ásamt ýmsu efni frá kennara sem tengist markmiðum aðalnámskrá.

Farið verður m.a. í sjálfsþekkingu og hvað hún kemur sér vel og hve mikilvægt er að byggja upp sterka sjálfsmynd. Hvað tilfinningar okkar eru óútreiknanlegar og hve gott er að kunna vel á þær. Ýmislegt varðandi samskipti, við okkur sjálf og aðra. Að nemendur átti sig á réttindum og skyldum í samfélagi sínu og margt fleira. Einnig er rætt um ýmis siðferðileg og heimspekileg málefni sem upp koma í sögunum um Val.

Spjallað er um efnið og nemendur vinna verkefni í tímum og heima, einstaklingslega og í hópum. Þeir gera grein fyrir ýmsum verkefnum fyrir hópnum. Nemendur leika ákveðnar aðstæður út frá klípusögum til að geta sett sig í spor annarra.

Námsmat verður skil á verkefnavinnu og virkni nemenda í tímum.

 


Myndmennt

 

Kennari: Sólrún Friðriksdóttir

Sjónræn upplifun er stór þáttur skynjunar og skilnings mannsins á heiminum enda bendir flest til þess að hann hafi allt frá upphafi vega myndgert líf sitt og umhverfi í margvíslegum tilgangi. Myndir hafa sitt eigið tungumál, myndmál, og maðurinn hefur alla tíð notað myndir sem boðtæki þeirra hluta sem ekki er hægt að lýsa á annan hátt. Myndmál miðlar viðhorfum, skoðunum og hugmyndum samfélagsins ekki síður en tungumál.

Á miðstigi skal leitast við að þroska með nemendunum hæfileika til að vinna sjálfstætt og efla hæfni þeirra til samstarfs við aðra þar sem um sameiginleg verkefni er að ræða. Þjálfuð eru þau lögmál og aðferðir sem emendur kynntust á yngsta stigi, þekkingin dýpkuð og nýir þættir lagðir inn. Í tengslum við skapandi starf þeirra á námið að vera hvati til aukinnar rýni og æ djúpstæðari skilnigs þeirra á lögmálum myndmáls í fortíð og nútíð.

Við lok 7. Bekkjar eiga nemendur að geta unnið eftir skipulegu ferli og nýtt sér grunnreglur í myndlist s.s. formfræði, litafræði og myndbyggingu. Þeir eiga að geta notað mismunandi verkfæri og miðla í eigin sköpun, s.s. málun, teikningu, grafík, mótun, tölvur og fl. Þeir eiga að skilja ýmis hugtök og heiti myndlistar og þekkja nokkrar stefnur í myndlist.

Sjá nánar: Aðalnámskrá grunnskóla fyrir listgreinar

Námsmat:

Öll unnin verkefni metin jafnóðum og metnir þættir s.s. frumleiki, vinnubrögð, framfarir, frumkvæði og viðhorf til námsins. Einnig sjálfsmat. Nemendur fá bæði umsagnir og einkunnir.
 


Tónmennt

Kennari: Þóranna Lilja Snorradóttir

Markmið

Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir listgreinar á heimasíðu menntamálaráðuneytisins

Áhugi nemandans sjálfs er ein mikilvægasta forsenda fyrir árangursríku námi. Í tónmennt er það því eitt af viðfangsefnunum að vekja áhuga, vekja með nemandanum jákvæða afstöðu til tónlistar og tónlistariðkunar og þroska jafnframt hæfni hans til að njóta tónlistar og gera sér grein fyrir gildi hennar fyrir einstaklinginn og samfélagið.

Námsefni

Tónmenntavefurinn, netið, gömlu góðu söngbækurnar og ýmsir geisladiskar.

Námsmat

Unnið að söngleik og hann settur á filmu. Vinna í tímum, sjálfsmat og símat.

 


Hönnun og smíði

Kennari : Þóranna Lilja Snorradóttir

Markmið

Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir hönnum og smíði á vef menntamálaráðuneytis

Í hönnun og smíði fær nemandinn þjálfun í að móta hugmynd í efni með þeirri verktækni og verkþekkingu sem greinin býr yfir. Þetta verklag hvílir á sígildri kunnáttu sem mikilvægt er að hver ný kynslóð nái að tileinka sér. Smíði felur í sér nýtingu efnisheimsins sem hefur aftur mótandi áhrif á umhverfi. Með smíðinni er verið að laga umhverfið að þörfum okkar.

Námsmat

Nemendur gera verklýsingu af einu verkefni og síðan eru verkefni metin.

 

 


Heimilisfræði

Kennari

Jóhanna Margrét Agnarsdóttir

Markmið

Að nemendur öðlist færni bæði í bóklegum og verklegum námsþáttum. Einnig þjálfist nemendur að vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra.

Fræðsla um heilbrigða lífshætti og góðar matarvenjur. Nemendur verði sér meðvitaðir um neytendafræði og umhverfisvernd. Rætt verður um hvernig nemendur geti tekið þátt í heimilisstörfum og útbúið einfalda rétti fyrir sjálfan sig og aðra.

Nemendur tileinki sér gott skipulag við heimilisstörf s.s. matreiðslu og bakstur.

Námsefni

Gott og gagnlegt (Heimilisfræði fyrir 5.bekk), Námsgagnastofnun.

Gott og ganglegt (Heimilifræði fyrir 6.bekk), Námsgagnastofnun

Gott og gagnlegt ( Heimilisfræði 7. bekkur) ,Námsgagnastofnun,

Námsmat Vinna,hegðun og frágangur nemenda metin.

Símat í kennslustundum gildir 80% og vinnubók 20%.
 


Upplýsinga- og tæknimennt
Björgvin Valur Guðmundsson

Áfangamarkmið

Að nemandi komi til með að líta á tölvur sem sjálfsagt hjálpartæki við hvers kyns störf. Nemandi skal venjast því að nota upplýsingatækni til framsetningar á efni, bæði á prentuðu og rafrænu formi.

Markmið

Sjá aðalnámskrá fyrir upplýsinga- og tæknimennt á síðu Menntamálaráðuneytisins.

 


Íþróttir

Kennari

Þóranna Lilja Snorradóttir/ Jóna Petra Magnúsdóttir

Markmið

Sjá aðalnámskrá grunnskóla fyrir íþróttir, líkams- og heilsurækt

Nemendur á grunnskólaaldri eru á aldursskeiði sem einkennist af miklum vexti og örum þroska. Framvinda eðlilegs þroska, hvort heldur um er að ræða skyn- og hreyfiþroska, líkams- og fagurþroska eða félags-, tilfinninga og siðgæðisþroska, er að miklu leyti háð hæfilegri áreynslu og samspili markvissra æfinga og leikja. Með kerfisbundinni þjálfun eða útfærslu leikja er hægt að auka starfsemi líkamans og sinna mismunandi þroskaþáttum. Á því aldursskeiði, sem grunnskólinn nær yfir, er t.d. unnt, betur en síðar á ævinni, að auka hæfni hjarta og blóðrásar með markvissri þjálfun. Hið sama á við um atriði sem ná til skyn- og hreyfiþroska. Því er það eitt meginmarkmið skólaíþrótta að örva skyn- og hreyfiþroska hvers nemanda, þrek hans og afkastagetu og stuðla þannig að heilbrigði einstaklingsins.

Námsmat

virkni í tímum, píptest og mánaðarleg þrekpróf.