Grunnskólinn á Stöðvarfirði

Lokadagurinn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Fimmtudagur, 25 júní 2009 10:46
Lokadagur skólastarfsins þann 29. maí hófst með útivist.  Eldri nemendur ætluðu að ganga upp Mosfellið sem er gegnt þorpinu, en urðu frá að hverfa vegna þoku.  Fóru þeir í staðinn á hálsinn fyrir neðan Mosfellið.  Yngri nemendur fóru upp fyrir þorpið og gengu að Klifbotnum og Háahnaus.  Að gönguferðum loknum hittust allir nemendur í Steinasafni Petru.  Þar skoðum þeir steina (að sjálfsögðu) og nutu veitinga.  Síðan var fyrirhugað að grilla fyrir allan mannskapinn, en vegna veðurs var borðað í Brekkunni.
Klukkan tvö var svo einkunna- og verðlaunaafhending.



Hér má sjá myndir af eldri nemendum, yngri nemendum og einkunnaafhendingum.