Grunnskólinn á Stöðvarfirði

Fundargerðir skólaráðs Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Mánudagur, 06 júlí 2009 16:26

Fundur í skólaráði 4. nóvember 2009

Mættir: Jónas Ólafsson, Solveig Friðriksdóttir, Guðný Sigurjónsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Jórunn Dagbjört Jónsdóttir, Jóhanna Margrét Agnarsdóttir, Guðmundur Arnór Hreinsson, Rósmarý Dröfn, Sólmundardóttir, Ingibjörg Eyþórsdóttir

Fundargerð ritar: Solveig Friðriksdóttir

1. Skólanámskráin (á linknum Starfsáætlun á síðu skólans)

  •  Breytingar á skólareglum bornar undir skólaráð.
  •  Sækja þarf skriflega um leyfi þegar þriðji dagurinn kemur inn.
  •  Breytingar á punktakerfinu. Ný atriði komin í punktakerfið; vinnur ekki í tíma, óhlýðnast starfsmanni, sýnir grófa ókurteisi.
  •  Samningur um fartölvunotkun er nýtt atriði í skólareglum þar sem nemendur koma í auknum mæli með fartölvur í skólann.
  •  Útskýring á prófseinkunn/lokaeinkunn.

 

Vegna veikinda síðustu vikna varð töf á því að klára námskrána. Því var ekki hægt að senda ráðsmönnum hana til yfirlestrar. Hvatt til að lesa hana yfir til umsagnar og koma með athugasemdir um hana.

 

Engar athugsemdir voru gerðar við þær breytingar sem kynntar voru á Skólanámskrá.

2. Námskrá

  •  Alltaf vísað í Aðalnámskrá á síðu Menntamálaráðuneytis

 

3. Viðbragðsáætlun v. svínaflensu kynnt.

4. Viðburðaáætlun fyrir Stöðvarfjörð og og Fáskrúðsfjörð sem send var í tölvupósti til foreldra 2.okt var kynnt. Oft hafa ýmsir viðburðir stangast á þegar verið er að skipuleggja hluti og gott að hafa áætlun uppi við.

5. Fundargerð Skólaráðs

Fundargerð Skólaráðs verður alltaf birt á heimasíðu skólans.

6. Önnur mál

Bent á að setja inn leiðbeiningar á heimasíðu skólans um það hvernig foreldrar geta fylgst með MSN notkun barna sinna.



Fyrsti fundur í skólaráði 30. apríl 2009

Mættir: Jónas Ólafsson, Jóhanna Margrét Agnarsdóttir, Ingibjörg Eyþórsdóttir, Guðný Sigurjónsdóttir, Rósmarý Sólmundardóttir, Jórunn D. Jónsdóttir, Guðmundur A. Hreinsson,

Ritari: Solveig Friðriksdóttir

1. Jónas kynnti Reglugerð um skólaráð við grunnskóla.

2. Drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2009-2010 kynnt. Engar athugasemdir gerðar og skóladagatal samþykkt.

3. Heimasíða skólans. Starfsáætlun fyrir skólann kynnt og hvar hægt er að finna ýmsar nytsamlegar upplýsingar, t.d. skólareglur, eyðublöð varðandi leyfi, veikindi ofl.

Allir kennarar hafa getað sett inn efni á heimasíðu skólans. Það gengur illa að koma efni inn og kom sú hugmynd að einhverjir ákveðnir sjái um að setja efni inn á hana.

4. Kennslustundir næsta skólaárs kynntar. Fyrirhugað er að fækka bekkjardeildum úr fjórum í þrjár. Þær bera nöfnin: Yngsta deild, Miðdeild og Elsta deild. Nemendum fækkar þar sem stór árgangur á okkar mælikvarða fer úr skólanum og fáir koma inn.

Önnur mál:

Tillaga frá foreldra að börn séu eingöngu með þær bækur í töskunum sínum sem nýta þarf til heimanáms. Töskurnar eru oft of þungar og verður að gæta að því vegna bakheilsu nemenda.