| Tónlist fyrir alla á Degi íslenskrar tungu |
|
|
|
| Mánudagur, 16 nóvember 2009 14:44 | ||||
|
Í dag komu Rússíbanar í heimsókn til okkar. Tilefnið var Tónlist fyrir alla en undir þeim merkjum ferðast tónlistarmenn um landið og spila í skólum vítt og breitt. Svo skemmtilega vill til að í dag er Dagur íslenskarar tungu á afmæli Jónasar Hallgrímssonar (og Viktors Breka) og þótt tónlistin væri héðan og þaðan úr veröldinni, var næstum eins og Jónas væri á svæðinu.
Sé smellt hérna (með mús en ekki fingrum), opnast líkt og fyrir töfra myndaalbúm með fleiri hreyfðum myndum af Degi íslenskrar tungu og tónlistar fyrir alla. Sérdeilis skemmtilegt eftirmiðdegi. Takk fyrir okkur Rússíbanar og Jónas.
|
||||


