Grunnskólinn á Stöðvarfirði

Heimilisfræði og handmennt Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
  
Föstudagur, 26 febrúar 2010 12:41
Heimilisfræði er skapandi og skemmtileg námsgrein eins og sést á myndunum hér fyrir neðan en börnin á Yngsta stigi töfruðu fram fagurlega skreytt rúgbrauð, að sjálfsögðu innblásin af hafinu og nálægðinni við.  Miðstig aftur á móti þæfði ull en það verður forvitnilegt að sjá hvað út úr því kemur að lokum.  Afmælisbarnið og skólaliðin Eva María var ánægð með allt saman og brosti sínu breiðasta.