Krakkarnir sem tóku heimilisfræði sem valgrein, kokkuðu upp dýrinds hádegisverð í dag. Því miður getum við hvorki fært ykkur lykt né bragð hérna en við getum sýnt ykkur kokkana og krásirnar.
Nemendur og Hanna Gréta heimilsfræðikennari (stendur fyrir miðju).
Piparkökuhús og furðuverur ýmiskonar eru ómissandi þáttur á aðventu og jólum. Hvort tveggja er framleitt í Grunnskólanum á Stöðvarfirði og á meðfylgjandi myndum má sjá nemendur vinna við framleiðsluna og afurðirnar:
Þeir voru hér á ferð, Aðalsteinn Ásberg og Svavar Knútur, og fluttu okkur dagskrá um líf og list Steins Steinar. Þeir röktu ævi hans, lásu og sungu ljóðin hans og voru bara allt um kring skemmtilegir.
Árshátíð Grunnskólans á Stöðvarfirði var haldin í gærkvöldi og lukkaðist bara svona ljómandi vel. Hérna er kyrrmyndasýning frá hátíðinni og ef til vill munu verða birtar hér innan skamms, hreyfimyndaupptökur af leikritum barnanna.